Einn hæstaréttardómari, umboðsmaður Alþingis, og "sérfræðingur" skipaður af forsætisnefnd Alþingis.
Þetta eru mennirnir sem leiða eiga rannsókn á hruninu hérlendis.
Af hverju?
Er einhver ástæða fyrir því að ekki er fenginn erlendur sérfræðingur til að stýra þessari rannsókn, önnur en sú að hin flekkuðu stjórnvöld þora ekki?
Þora ekki að hugsa hlutina upp á nýtt?
Þora ekki að missa tökin?
Það er það sem maður er hræddur við.
Þið fyrirgefið innilega, en af hverju ættu einhverjir þrír Íslendingar að vera betri til að rannsaka málið en almennilegur útlendingur?
Mun hið pólitíska jukk byrja strax og flokkarnir fara að makka um hver eigi að vera "sérfræðingur" Alþingis?
Og halda svo áfram?
Blogg
HIÐ PÓLITÍSKA JUKK HEFST?
05:38 › 27. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
