ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EKKI BLAÐAMANNAFUND Á MORGUN, PLÍÍÍÍS!

14:55 › 27. nóvember 2008


Því miður er svo komið að þótt maður ætti að fagna því ef forkólfar ríkisstjórnarinnar boða blaðamannafund, þá er það orðið í senn kvíðvænlegt og eiginlega aðhlátursefni um leið.

Sérstaklega ef þeir blaðamannafundir eru haldnir á föstudögum síðdegis.

Þá vitum við að nú á dúsan okkar að koma, það sem á að koma í veg fyrir að nokkur þúsund til viðbótar mæti á mótamælafund á Austurvelli.

Síðast voru það lagfæringarnar alræmdu á eftirlaunafrumvarpinu.

Sem komast hvergi nærri í námunda við það sem fólkinu í þessu landi þykir sanngjarnt og réttlátt.

Ég ætla bara að leyfa mér að tala hér í nafni þjóðarinnar, þakka ykkur kærlega fyrir!

Mikið væri gott ef ríkisstjórnin gæti hugsað sér að hætta að ganga fram af fólki með hálfkáki sínu og hálfsannleika og sleppti því að boða blaðamannafund á morgun.

Eða fjölmiðlamenn slepptu því alla vega að mæta.








ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?