Giorgos og Þanos eru tveir snjallir grískir leikhúsmenn sem hafa komið nokkrum sinnum hingað til lands síðustu árin og sett upp tvær eftirminnilegar leiksýningar: Mýrarljós og Bakkynjur. Þeir eiga hér marga vini og þykir orðið innilega vænt um Ísland og Íslendinga.
Nú þjást Giorgos og Þanos af áhyggjum yfir sínum íslensku vinum, enda gefa fréttir í Grikklandi til kynna að hér lepjum við dauðann úr skel.
En þeir félagar hvetja okkur til að láta ekki hugfallast.
"Gangið í Evrópusambandið og takið upp evru, og verið ekki að slóra við það. Við Grikkir bjuggum lengi við okkar eigin mynt, drökmuna, og íhaldsfauskar í landinu höfðu talið okkur trú um að það væri spurning um þjóðarvitund okkar að halda í hana.
En hún var orðin alltof lítil í alþjóðlegu samhengi, rokkaði upp og niður, og að lokum urðum við að taka upp evru.
Daginn sem evran var tekin upp fengum við vissulega óbragð í munninn, því kaupmenn notuðu tækifærið til að hækka vörur upp úr öllu valdi, meðan verðskyn okkar var lélegt, en að öðru leyti er reynsla okkar af evrunni mjög góð.
Engir verulegir ókostir gerðu vart við sig. Sveiflurnar hættulegu eru fyrir bí. Það er mest um vert.
Lærið af því, Íslendingar.
Sjávarútvegsmálin? Sko, ólífurækt er hér í Grikklandi mjög sambærileg við fiskiðnaðinn ykkar. Og árum saman var okkur talin trú um að ef við gengjum í ESB myndi ólífuolíuiðnaðurinn okkar hrynja.
Ítalir og Spánverjar myndu vaða yfir okkur á skítugum skónum og leggja allt í rúst.
Það fór á allt annan veg. Ólífuiðnaðurinn hefur plumað sig bara prýðilega innan ESB. Ætli geti ekki farið eins um fiskiðnaðinn ykkar?
Svo - góðu íslensku vinir - verið ekki að tvínóna við þetta. ESB er auðvitað ekki paradís og evran er ekki manna frá himnum. Og það getur vel verið að alheimskreppan fari á endanum að bíta okkur á Grikklandi svolítið líka.
En við vitum að hún verður ekki eins slæm og á Íslandi, og við Grikkir þurfum ekki að takast á við hana einir eins og þið verðið nú að gera."
Blogg
GIORGOS OG ÞANOS HAFA TALAÐ: TAKIÐ UPP EVRU!
21:42 › 26. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
