Bjarni Harðarson hefur nú stigið fram og ætlar að bera óhreina tauið úr Framsóknarflokknum á tún.
Það er fínt. Og meira af slíku! Við höfum gott af því að fá að virða þetta krumpaða tau fyrir okkur.
Þótt sumt af því sé án efa ansi dökkt.
Af þessu tilefni spyr Lára Hanna Einarsdóttir hvenær einhver muni stíga fram og byrja að bera á tún óhreina tauið úr Sjálfstæðisflokknum.
Og verður "þjóðhetja" fyrir vikið, spáir hún.
Sem er líklega alveg rétt.
En þá datt mér í hug að fyrir 5-6 árum síðan var ég að "breinstorma" með útgefanda nokkrum hér í borg um hvaða bækur mætti gefa út. Og ég lagði fyrir hann þessa hugmynd hér:
Fá svona 18 ára ungmenni, pilt eða stúlku, til að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og þykjast vera frjálshyggjumaður hinn mesti og ódrepandi baráttumaður fyrir hugsjónum Davíðsklíkunnar.
Byrja að vinna af ógurlegum krafti í flokknum og sækjast eftir því að komast í allar nefndir og á alla fundi. Byrja á að raða stólum í Valhöll, flokka pappíra, halda fundagerðir etc etc.
Á nokkrum árum átti ungmennið að vera komið í innsta kjarna valdaklíkunnar í flokknum. Vissulega ennþá bara fótgönguliði en samt í náinni snertingu við æðsta valdakjarnann.
Og hvernig kaupin gerðust á þeirri eyri.
Allan tímann átti ungmennið að halda nákvæma dagbók og skýrslu um hvernig mál gengju fyrir sig innan flokksins.
Skrifa svo bók um allt saman.
Þar sem sérhver óhreinn taubútur yrði á tún borinn ...
Þessa hugmynd setti ég vitaskuld bara fram í gamni, og þannig var henni líka tekið.
En núna hefði ég vissulega ekkert á móti því að komast í plöggin hjá slíkum flugumanni eða uppljóstrara.
Blogg
FLUGUMAÐUR INN Í SJÁLFSTÆÐISFLOKKINN?
10:36 › 26. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
