Frétt Fréttablaðsins um "loftbólufélögin" sem hafi verið notuð til að halda uppi óeðlilega háu verði á bönkunum er afar óskemmtileg, svo ekki sé nú fastar að orði kveðið.
En allra alvarlegust þykir mér þessar setningar hér:
"Að sögn heimildarmanns Fréttablaðsins var þessi aðferðafræði við að
halda uppi fölsku hlutabréfagengi ljós öllum sem störfuðu á
fjármálamarkaði og vildu vita. Almenningur, sem hafi hins vegar treyst
því að verðmyndun á hlutabréfamarkaðnum í Kauphöllinni væri eðlileg,
hafi hins vegar verið hafður að fífli í risastórri spilaborg sem hafi
ekki getað annað en farið á hliðina."
Hverjir voru þessir "allir"? Við þurfum að fá að vita það.
Blogg
VISSU "ALLIR" UM LOFTBÓLUFÉLÖG?
09:11 › 25. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
