ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VIÐ SKULUM GERAST SJÓRÆNINGJAR!

11:29 › 25. nóvember 2008


Fjöldi fólks er að missa vinnuna. Fjármálastarfsemi verður næstu árin mjög lítilfjörlegur þáttur í atvinnulífinu.

Hvernig væri að við færum að stunda sjórán í stórum stíl til að auka tekjurnar?

Það virðist engin leið að sigrast á sjóræningjum Sómala. Þeir moka inn peningum og alþjóðasamfélagið er ráðalaust. Hugsið ykkur þá bara hvað við yrðum flottir sjóræningjar!

Nóg er af skipaferðum framhjá landinu.

Útrásarvíkingarnir yrðu fínir í stafni ræningjaskipanna okkar.

Sumir myndu jafnvel segja að þeir kynnu fagið nú þegar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?