ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

NÆTURSVEFN GEIRS HAARDE, OG "BRANDARINN"

09:46 › 25. nóvember 2008


Í þættinum Sjálfstætt fólk kom fram, skilst mér, að Geir Haarde ætti ekki í nokkrum vandræðum með nætursvefn.

Það er ekki skrýtið.

Geir kippir sér ekki upp við smámuni.

Svo fremi sem þeir koma fyrir annað fólk.

Geir sagði sama brandarann tvisvar í gær.

Fyrst í umræðum á Alþingi, síðan í sjónvarpsfréttum eftir fundinn í Háskólabíói.

Ef brandara skyldi kalla.

Sko, þegar honum fannst einhverjir vilja tala um of í nafni þjóðarinnar, þá minnti hann á að hér hefði nú einu  sinni verið dagblað sem hét Þjóðviljinn.

Og glotti, hohoho.

Merking "brandarans" var að það væri nú ekki mikið meira að marka "þjóðviljann" nú en gamla kommúnistaruglið í Þjóðviljanum í gamla daga.

Enn eitt dæmið um viðleitni ráðamanna til að gera lítið úr reiði fólks.

Enn eitt dæmið um að Geir skilur EKKERT hvernig fólkinu í þessu landi líður.

Ég trúi því alveg að hann sofi mjög vel um nætur.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?