ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

JÓN ÁSGEIR Á SÍNUM RANGE ROVERUM

21:24 › 25. nóvember 2008


Þegar ég hef verið að keyra heim úr Vesturbæjarlauginni um kvöldmatarleytið að undanförnu hef ég iðulega mætt Jóni Ásgeiri Jóhannessyni á ýmsum sínum Range Roverum, hvítum eða svörtum.

Hann er þá að koma eða fara frá aðalstöðvum Baugs við Túngötu.

Ég get vottað að Jón virkar prýðilegur bílstjóri og alls enginn glanni svona innanbæjar.

En þegar þetta gerðist síðast ávarpaði ég Jón Ásgeir í huganum og sagði:

"Æ, vinur, hefurðu ekki haft alveg skammarlega lítinn tíma til að dvelja í íbúð þinni í New York að undanförnu?"

Ég skal fúslega viðurkenna: Þetta fannst mér ansi fyndið hjá mér ...



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?