Geir Haarde getur greinilega ekki sagt satt.
Á fundinum í Háskólabíói í gærkvöldi tók hann sérstaklega til máls til að kveða niður "misskilning" varðandi "norska hernaðarráðgjafann" og störf hans.
Hann sagði að þessi Norðmaður hefði bara haft þann starfa að sjá um samskipti við erlenda blaðamenn.
Þetta tók Geir skýrt og skilmerkilega fram, þannig að ekki fór milli mála.
Nú í kvöld var viðtal í Kastljósi við Norðmanninn sem þar lýsti starfi sínu.
Hvort þar var öll sagan sögð veit ég ekki.
En svo er mikið er víst að þessi maður hafði ekki bara þann starfa að sjá um samskipti við erlenda blaðamenn.
Það var deginum ljósara.
Og líka deginum ljósara að það er ekki hægt að treysta Geir yfir götu.
Þennan mann sitjum við uppi með sem forsætisráðherra á mestu erfiðleikatímum í sögu lýðveldisins.
Blogg
GEIR ER GOSI
20:08 › 25. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
