Barack Obama er búinn að setja saman nefnd færustu hagfræðinga og efnahagsspekúlanta sem eiga að vera honum til ráðuneytis í kreppunni.
Áhersla hefur verið lögð á að velja fólk úr ýmsum áttum með bein í nefinu.
Og það var eins og við manninn mælt, traust Bandaríkjamanna á Obama og reyndar á sinni eigin framtíð tók fjörkipp.
Hvar er efnahagsráð Geirs Haarde?
Ég og fleiri höfum vikum saman lagt til að hann skipaði einmitt svona sterkan og sýnilegan hóp. Sem gæti tekið til hendinni og aukið okkur traust á því að það væri verið að gera eitthvað.
Þorvaldur Gylfason, Lilja Mósesdóttir, Jón Daníelsson, Ólafur Ísleifsson, bestu menn ASÍ og SA etc etc.
Þegar þessu fólki væri smalað saman í eitt herbergi og sagt að komast að niðurstöðu, þá gæti það varla klikkað.
Geir hefur ekki fattað hvað þetta væri öflugur leikur.
Hann er ekki eins klár og Obama, það er víst rétt.
Blogg
BARACK OBAMA ER KLÁRARI EN GEIR
07:57 › 25. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
