Nú hafa Þjóðverjar tilkynnt að þeir ætli að sleppa Christian Klar, sem hefur setið í fangelsi í 26 ár fyrir aðild að morðum og fleiri glæpum. Hér fyrir ofan er mynd af honum. Á ofanverðum áttunda áratugnum var Klar helsti forystumaður Rote Armee Fraktion (RAF) eða Baader-Meinhof samtakanna.
Hann, Brigitte Mohnhaupt og fleiri stóðu fyrir ráninu á Hanns-Martin Schleyer formanni vestur-þýskra atvinnurekenda 1977 og drápu hann síðan þegar ekki var gengið að kröfum þeirra um að sleppa Andreas Baader, Gudrun Ensslin, Jan-Carl Raspe o.fl.
Á þessum árum taldi ég mig dyggan stuðningsmann RAF og skrifaði m.a.s. grein í skólablað MR til stuðnings samtökunum.
Ég var auðvitað bara táningsgrey og þóttist vera einhvers konar anarkisti án þess þó að nenna að lesa stafkrók í þeim "fræðum" nema 2-3 fyrstu síðurnar í Max Stirner.
RAF-menn voru reyndar kommúnistar, að því marki sem einhver hugmyndafræði bjó að baki illvirkjum þeirra.
Ég gerði lítinn greinarmun á því.
Hjá mér var þetta aðallega einhver töffaraskapur á villigötum. Maður túlkaði þetta bara sem einhvers konar framhald af pönkinu.
Miðað við hryðjuverkamenn seinni tíma voru RAF-menn ósköp afkastalitlir, en auðvitað áttu þeir samt ekki að drepa fólk.
Það rann nú líka fljótlega upp fyrir mér þegar tvítugsaldurinn færðist nær. Og ég hef ekki séð ástæðu til að leggjast í djúpa sjálfsásökun fyrir þennan ungæðislega "stuðning" við Baader-Meinhof samtökin.
Þegar ég hef lesið um Christian Klar og félaga síðan hef ég þó alltaf skammast mín verulega fyrir þennan "stuðning".
Því það var svo fjarri því að Klar, Mohnhaupt og þetta lið hafi verið einhvers konar frjálshuga andar í baráttu gegn kúgun og óréttlæti.
Eins og ég vonaði kannski á sínum tíma, eða ímyndaði mér.
Þvert á móti sýnist mér allt benda til að þau hafi verið þröngsýn og kaldlynd fífl.
Blogg
ÞEGAR ÉG STUDDI HRYÐJUVERKAMENN
11:17 › 24. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
