Síðan bankahrunið átti sér stað hafa hrannast upp hugmyndir um hvernig Íslendingar geta sparað peninga eða skapað peninga.
Það vantar ekki nýjar hugmyndir, það er þó að minnsta kosti guðsþakkar vert.
Björk og fleiri hafa vakið athygli á sprotafyrirtækjum, Egill Helgason hefur birt fjölda bréfa með ýmsum góðum hugmyndum á bloggsíðu sinni, Eyjan.is er komin með sérstaka deild sem helgar sig uppástungum um hitt og þetta sem skapar atvinnu.
En er einhver að hlusta?
Er einhver opinber eða hálfopinber stofnun sem hefur tekið að sér að halda þessum hugmyndum saman og styðja við þær?
Auðvitað á ekki að treysta einvörðungu á hið opinbera, það vitum við. En hið opinbera - sem þykist vera svo önnum kafið við "björgunarstarf" að ekki sé hægt að kjósa fyrr en eftir dúk og disk - getur þó skammast til að halda sæmilega utan um þetta.
Ég held bara að það sé ekki raunin.
Blogg
ÞAÐ ER ENGINN AÐ HLUSTA
11:09 › 24. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
