Stuðningur við evru og ESB hefur minnkað svolítið í skoðanakönnun núna, miðað við skoðanakönnun frá í október.
Það er út af fyrir sig ósköp eðlilegt. Í október voru menn uppfullir af þeirri hugsun að redda málunum strax.
Nú vilja menn líklega hugsa málið betur.
Það er ágætt, þó mér þyki ekki eftir neinu að bíða með að sækja um aðild. Við þurfum að fá að vita hvað sú aðild hefði í för með sér og við fáum ekki að vita það nema en í Brussel.
Fundahöld í Valhöll eða hjá Vinstri grænum munu ekki skila okkur neitt betri mynd af þeim kostum sem í boði eru.
En látum svo vera.
Það væri gaman að heyra hér frá þeim sem telja að við ættum umfram allt ekki að ganga í ESB og taka upp evru.
Hvað eigum við þá að gera?
Blogg
HVAÐ VILJA ÞEIR SEM EKKI VILJA EVRU?
10:00 › 24. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
