ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ENDUM VIÐ ÖLL Í LÍMVERKSMIÐJUNNI?

13:35 › 24. nóvember 2008


Mér finnst stundum að ákveðinn partur stjórnvalda í þessu landi líti svo á að við eigum nú að haga okkur eins og trygglynda duglega hrossið í Animal Farm eftir George Orwell.

Á ensku heitir hesturinn Boxer, ég man ekki hvað hann heitir í íslensku þýðingunni.

Boxer trúði í blindni á yfirvöldin, það er að segja svínin á bænum undir forystu hins mikla Napóleons.

Þegar allt fór að fara til andskotans á bænum undir stjórn Napóleons trúði Boxer því alltaf að það væri utanaðkomandi aðstæðum að kenna, eða innri óvinum (útrásarvíkingunum?).

Hans viðkvæði var ævinlega það sama: "Ég verð að leggja harðar að mér."

Og hann þrælaði og púlaði og jaskaði sér út og ef einhver dirfðist að víkja óblíðu orði að félaga Napóleons vildi hesturinn ekki persónugera vandann á þann hátt.

"Félagi Napóleon hefur alltaf rétt fyrir sér," sagði hann.

Þetta endaði með því að hesturinn var orðinn örmagna og heilsulaus og útkeyrður en alltaf jafn tryggur félaga Napóleon.

En svínið seldi hann þá í límverksmiðju til að borga brennivín oní sig sjálft.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?