ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EKKI VERA HRÆDDUR, GEIR ...

10:23 › 23. nóvember 2008


... því nú er Fréttablaðið búið að gera könnun sem sýnir að stóri vondi Davíðinn nýtur ekki neins fylgis né trausts hjá þjóðinni.

Við vissum það nú raunar fyrir, því 90 prósent landsmanna voru búin að lýsa því yfir að hann ætti auðvitað að hypja sig úr starfi.

Nú sýnir nýja könnunin að 4,7 prósent þjóðarinnar myndu styðja sérframboð Davíðs.

En hann hefur sem kunnugt er hótað því að koma eins og eldibrandur inn í stjórnmálin aftur með sinn eigin flokk ef hróflað verður við honum úr Svörtuloftum.

Nú þarf Geir ekki framar að vera hræddur við það.

Og hann þarf heldur ekki að óttast hallarbyltingu Davíðs innan Sjálfstæðisflokksins. Þeir fáu sem enn styðja gamla leiðtogann innan Sjálfstæðisflokksins hafa verið duglegir að hvísla í eyrað á Geir að ef hann amaðist við gamla foringjanum, þá yrði gerð bylting í Sjálfstæðisflokknum.

En könnunin sýnir að 7,8 prósent myndu styðja Sjálfstæðisflokkinn með Davíð í forystu.

Ég hugsa að jafnvel Birgir Ármannsson og Sigurður Kári myndu hugsa sig um áður en þeir tækju þátt í slíku feigðarflani með gamla foringjanum.

Nei, dagar Davíðs eru liðnir.

Og rétt að taka fram að 95 prósent aðspurðra tóku afstöðu.

Svo Geir þarf ekki að vera hræddur við neitt.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?