Grein eftir Þorvald Gylfason er birt hér:
http://www3.hi.is/~gylfason/Tvifall.pdf
Ég hvet fólk til að lesa hana. Hún fjallar um græðgi hinna íslensku bankamanna og meðvirkni stjórnmálamanna með þeim.
Í lokin bendir Þorvaldur á að auðvitað verði að hreinsa til í íslensku samfélagi. Spúla ærlega út á æðstu stöðum.
"Ekkert annað dugir," eru lokaorð hans.
Það segir sig raunar svo sjálft, að það er beinlínis grátlegt að fólk þurfi að safnast saman á Austurvelli viku eftir viku eftir viku til að benda á það.
Einhver mestu vonbrigðin í þessu hruni öllu saman eru og verða hin afdráttarlausa yfirlýsing Ingibjargar Sólrúnar um að kosningar "komi ekki til greina".
Enda trúi ég ekki öðru en efnt verði til kosninga fyrr en síðar á næsta ári. Einhvern tíma hlýtur það að renna upp fyrir fólki hvílík svívirða það er að Sjálfstæðisflokkurinn fari áfram með völd í þessu landi.
En þangað til kosið verður duga ekki smáskammtalækningar á föstudögum klukkan fimm, samkvæmt fyrirmælum PR-manna og spunalækna.
Ég ætla rétt að vona að Samfylkingin láti ekki framar hafa sig í að kasta svoleiðis blautri tusku framan í almenning.
Í augnablikinu þarf að gera þrennt:
1. Hreinsa út af æðstu stöðum. Allt annað er bara nauðgun á réttlætisvitund almennings.
2. Risastór áætlun um björgun heimila og fyrirtækja í landinu, þar sem allir sitja við sama borð. Íslensk stjórnvöld þurfa að kalla til nokkra helstu hagfræðinga okkar og biðja um ráðgjöf allra færustu sérfærðinga í útlöndum.
Ég hef ekkert voðalega trú á hagfræðingum í ráðuneytum Íslands, því miður. Ætti þessi vinna kannski að fara fram undir forystu Baldurs Guðlaugssonar í fjármálaráðuneytinu?!!
3. Raunveruleg rannsókn á aðdraganda og orsökum bankahrunsins. Absólútt undir forystu útlendinga. Það er búið að tala og tuða um slíka rannsókn; en hvar er hún?
Þetta þrennt verður að gera strax, ef ríkisstjórnin á að lifa fram á vor.
Ekkert annað dugir.
Blogg
EKKERT ANNAÐ DUGIR
09:09 › 23. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
