ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.2° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EINA LÍFSVON RÍKISSTJÓRNARINNAR

18:58 › 23. nóvember 2008


Hvort sem við viljum kosningar strax eða kosningar í vor eða kosningar ennþá síðar ...

Hvort sem við viljum evru og ESB eða norska krónu eða jafnvel krónuræfilinn okkar áfram ...

Hvort sem við teljum að stjórnvöld eigi mestan þátt í hruninu eða útrásarvíkingarnir eða einhverjir allt aðrir ...

... þá viljum við alla vega ekki business as usual.

Ríkisstjórnin má ekki og getur ekki lokað sig inni í Stjórnarráðinu og sagt:

"Ekki trufla okkur, við erum önnum kafin við að bjarga landinu."

Ef hún ætlar að eiga sér minnstu lífslíkur verður hún að stíga út á meðal fólksins, útskýra hvað hún er að gera, útskýra hvað á að gera og umfram allt leita ráða, leita sátta, leita hjálpar.

Og jafnvel biðja fyrirgefningar, þar sem það á við.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?