ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÁRÁSIN Á HINA ÍSLENSKU BASTILLU?

12:45 › 23. nóvember 2008


Opinber upphafsdagur frönsku byltingarinnar er 14. júlí 1789.

Þá réðst alþýðan á Bastilluna, fangelsi konungsstjórnarinnar í París, og frelsaði pólitíska fanga kúgunarstjórnarinnar úr haldi, eins og það heitir.

Þetta er svo mikill partur af mýtunni um byltinguna gegn kónginum að 14. júlí er síðan þjóðhátíðardagur Frakka.

Ætli 22. nóvember verði einhvern tíma þjóðhátíðardagur Íslands?!

En mýtur eru því miður oft bara mýtur.

Þeir "pólitísku fangar kúgunarstjórnarinnar" sem frelsaðir voru í árásinni á Bastilluna voru sjö talsins.

Fjórir peningafalsarar, tveir "brjálæðingar" og einn kynferðisbrotamaður af aðalsættum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?