Þessa grein birti ég í Mogganum í morgun:
Ég veit að það er mikilvægt að kaupa jólagjafirnar. Það er von á verðbólguskoti og verðhækkunum á útlenskum vörum.
Ég veit að það er mikilvægt að horfa á ensku knattspyrnuna. Liverpool hefur ekki byrjað svona vel lengi og allt í einu er orðið skemmtilegt að horfa á Chelsea.
Ég veit að það er mikilvægt að hvíla sig. Eftir að hafa púlað í heila viku og auk þess fylgst linnulaust með vondum fréttum og bölsýnisbloggi, þá er heilatetrið orðið ósköp lúið.
Ég veit að það er mikilvægt að fara í sund. Látið mig vita það; bunan í Vesturbæjarlauginni hefur bjargað lífi mínu undanfarnar vikur.
En þótt allt þetta sé mikilvægt í dag, þá er eitt þó enn mikilvægara.
Að sýna þá sjálfsvirðingu að fara niður á Austurvöll klukkan þrjú og mótmæla. Sýna að við höfum það stolt að láta ekki vaða yfir okkur endalaust.
Yfirlæti og fyrirlitning
Mótmælum þeirri óheftu frjálshyggju sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn steyptu yfir samfélagið, og hafa nú kallað yfir okkur hrun.
Mótmælum þeim hroka sem mætt hefur okkur hjá forsætisráðherra sem gefur til kynna að mótmælendur á Austurvelli séu skríll og fréttamenn sem vilja svör við spurningum sínum séu dónar og fífl.
Mótmælum þeim skorti á upplýsingum, lygum og hálfsannleik sem einkennt hefur samfélagið síðan hrunið átti sér stað.
Mótmælum því að að ekki eigi að kalla til erlenda sómamenn til að stjórna rannsókn á orsökum hrunsins, heldur eigi það að gerast undir forræði íslenskra stjórnmálamanna.
Við höfum ekki góða reynslu af íslenskum stjórnmálamönnum, takk fyrir!
Mótmælum því samtryggingakerfi spillingar og klíkuskapar sem enn er með klærnar í flaki samfélagsins.
Mótmælum þeirri forgangsröð að öllu skipti að spilltir bitlingakóngar stjórnmálaflokkanna haldi sínum vel launuðu störfum hjá ríkinu (okkur) meðan þúsundir venjulegs fólks missa vinnuna vegna afglapa þeirra.
Mótmælum því að stjórnvöldum virðist ofar í huga að bjarga andliti stjórnmálamanna, embættismanna í réttum flokkum og kaupsýslumanna í réttum klíkum, en að bjarga almenningi og heiðarlegum fyrirtækjum frá gjaldþroti.
Mótmælum því að við fáum ekkert að vita um það starf sem nú fer fram í bönkunum og víðar við að „endurreisa íslenskt efnahagslíf“.
Mótmælum því að kröfur um opnari stjórnsýslu og heilbrigðari stjórnsýslu séu hafðar að háði og spotti.
Mótmælum því fyrst og fremst að kröfum um að almenningur fái að segja álit sitt í kosningum með vorinu sé svarað með yfirlæti og fyrirlitningu.
Stolt og sjálfsvirðing
Þótt við kunnum að hafa mismunandi skoðanir á orsökum hrunsins og þótt við höfum kannski mismunandi skoðanir á ESB, þá getum við þó öll sameinast um að mótmæla þessu.
Á Austurvelli klukkan þrjú í dag.
Það er hægt að fara snemma að kaupa jólagjafirnar, eða eftir að fundurinn er búinn.
Og Liverpool er nú bara að keppa við Fulham í dag; það verður tæpast mjög áferðarfallegur leikur.
Það má líta á það sem hvíld að ganga niður á Austurvöll og fylla lungun af hreinu lofti við að hrópa skoðanir sínar hástöfum.
Og Vesturbæjarlaugin er opin til klukkan átta í kvöld.
Svo við höfum tíma.
Og við höfum stolt og við höfum sjálfsvirðingu.
Mætum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
