ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

"ÞETTA ER SÍÐASTA ÍSLENSKA KRÓNAN"

21:12 › 22. nóvember 2008


Áðan fór ég í sund með níu ára syni mínum og vini hans.

Ég fór náttúrlega beint í heita pottinn en þeir út í laug að leika sér.

Nokkru seinna var ég á leið í gufubaðið þegar drengurinn kallaði til mín úr lauginni.

"Sjáðu, pabbi, sjáðu!"

Þeir héngu þá báðir í hringlaga plastskífu, allstórri, sem þó var að sökkva smátt og smátt undan þunga þeirra.

"Sjáðu, pabbi!" kallaði drengurinn. "Þetta er síðasta íslenska krónan."

Svona leika börnin sér á Íslandi í nóvember 2008.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?