"Viðtalið" við Geir Haarde sem G. Pétur Matthíasson birtir á bloggsíðu sinni lýsir viðhorfi íslenskra ráðamanna almennt og Geirs Haarde sérstaklega.
Geir er ósáttur við einhverjar spurningar hjá fréttamanni Sjónvarps og bregst mjög reiður við.
Þeir þrasa svo um hvort halda skuli viðtalinu áfram.
GEIR: "Ég er ósáttur við að þú teljir að mér beri að koma í viðtal þegar þér finnst ..."
G.PÉTUR: "Þú ert forsætisráðherra þjóðarinnar."
GEIR: "Já, þess vegna ákveð ég sjálfur ..." og svo eitthvað ógreinilegt.
En þessi orðaskipti sýna það hugarfar sem ræður. Lítur Geir á sig sem þjón íslensku þjóðarinnar? Og hann skuldi henni eitthvað fyrir það lífsviðurværi sem þjóðin sér honum fyrir?
Nei! Ég stjórna, ég geri það sem mér sýnist.
Þessu hugarfari verður að útrýma úr íslenskri pólitík.
Það verður að vera þungamiðja í næstu kosningum, en ekki einhver tæknileg atriði efnahagsmála, svo mikilvæg sem þau eru.
ÞESSU HUGARFARI VERÐUR AÐ ÚTRÝMA!
Blogg
"ÞESS VEGNA ÁKVEÐ ÉG SJÁLFUR ..."
10:29 › 22. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
