09:44 › 22. nóvember 2008
Í gær gerðist ég ábyrgur borgari og sendi þingmönnum Samfylkingar tölvupóst þar sem ég spurði hvort þeir vildu að kosið yrði til Alþingis á næsta ári.
Þessi spurning var í framhaldi af furðulega afdráttarlausri yfirlýsingu Ingibjargar Sólrúnar um að kosningar "kæmu ekki til greina".
Á mjög skömmum tíma fékk ég þrjú svör. Frá Steinunni Valdísi, Katrínu Júlíusdóttur og Ellert Schram.
En síðan skall á fársleg þögn.
Ekki eitt einasta svar hefur komið síðan.
Skrýtið að fá þrjú svör strax, og svo alls ekki neitt.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
