Það er mikill misskilningur ef Ingibjörg Sólrún kýs að trúa því að meirihluti þeirra sem að undanförnu hafa krafist kosninga hafi verið að heimta kosningar NÚNA.
Það vita allir að það væri ótækt að kjósa NÚNA.
"Núna" þýðir í þessu tilfelli rétt eftir áramót.
Það væri heldur ekki gott að kjósa í febrúar.
Það er rétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu að þá verða enn í gangi ýmsar þær aðgerðir sem vonandi munu bjarga því sem bjargað verður í þessu samfélagi.
En kosningar í vor eru algjörlega fullkomlega eðlilegar og sjálfsagðar, og það er mjög mikill ábyrgðarhluti hjá Ingibjörgu Sólrúnu að tala sífellt um að kosningar "komi ekki til greina".
Með því bindur hún sig alltof fast til Geir Hilmar Haarde.
Og Geir er - eins og ég var að enda við að mála á nýtt mótmælaspjald sem ég ætla með niður á Austurvöll - gagnslaus.
Blogg
KJÓSUM Í VOR! HVORKI FYRR NÉ SÍÐAR
13:41 › 22. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
