En ef þetta var nú í alvörunni Ingibjörg Sólrúnu (sjá næstu færslu hér á undan), þá er hún á MJÖG hættulegri braut.
Kosningar koma ekki til greina? Í miðjum björgunarleiðangri?
Ég er nú að verða öööööörlítið þreyttur á þessu kjaftæði um að ekki megi anda á íslensk stjórnvöld af því þau séu í svo mikilvægum björgunarleiðangri.
Í fyrsta lagi hefur sá björgunarleiðangur nú gengið sona og sona hingað til. Vægast sagt.
Í öðru lagi á maður einmitt að skipta um hest í miðri á ef gamla þreytta hrossið er að ana með mann út í einhverja vitleysu.
Ef Ingibjörg Sólrún hefði sagt að kosningar kæmu ekki til greina rétt eftir áramót væri það sök sér. Ég væri út af fyrir sig sammála því.
Ef hún hefði sagt að kosningar kæmu ekki til greina fyrr en með vorinu, þá væri það líka sök sér. Þá verða flestar "aðgerðir stjórnvalda" um garð gengnar og við á fullu að bíta bara á jaxlinn.
En hún virðist hafa sagt að kosningar kæmu ekki til greina. Púnktur.
Er Ingibjörg Sólrún gengin í eitthvað hrokafélag með Geir Haarde?
Blogg
MJÖG HÆTTULEG BRAUT
11:12 › 21. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
