ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KOSNINGAR 3 - EKKI KOSNINGAR 1

13:02 › 21. nóvember 2008


Ég er búinn að senda þingmönnum Samfylkingar eftirfarandi bréf:

"Ágæti þingmaður Samfylkingar.

Eftir hið mikla hrun í íslensku efnahagslífi verða gífurlegar byrðar lagðar á almenning.

Mörgum þykir sjálfsagt að almenningur fái sem fyrst tækifæri til að kjósa upp á nýtt, til að endurnýja umboð þeirra stjórnmálamanna sem fólk vill að stýri landinu á næstunni.

Því legg ég fyrir einfalda spurningu og bið um einfalt og skýrt svar:

Ert þú þeirrar skoðunar að rétt sé að kjósa til Alþingis á næsta ári, væntanlega á vordögum?

Ég áskil mér rétt til að birta svar þitt opinberlega á bloggsíðu minni.

Virðingarfyllst,

Illugi Jökulsson"

Eitt svar barst mér þegar í stað, frá Steinunni Valdísi.

Hún sagði afdráttarlaust að hún vildi láta kjósa á næsta ári.

Næst barst svar frá Katrínu Júlíusdóttur. Einfalt "Já, ég tel það eigi að kjósa á næsta ári."

Ellert Schram segir vissulega ábyrgðarlaust að boða til kosninga í miðjum björgunaraðgerðum. En strax og fari að rofa til eigi að boða til kosninga og "þess vegna fyrir vorið".

Ég flokka þetta sem "já" og Ellert hefur fallist á það.

Staðan er þá þessi: Kosningar 3 - Ekki kosningar 1.

Þessi eini er auðvitað Ingibjörg Sólrún, álit byggt á yfirlýsingu hennar í dag.

Og nú þætti mér tímabært að fá svör frá fleiri þingmönnum.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?