Einhverra hluta vegna fór það greinilega framhjá mér að í fyrra hafi sest grínisti á Alþingi. Hann heitir Jón Gunnarsson og er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Ég vissi ekki að þessi góði maður væri á þingi, fyrr en nú að hann stekkur fram með gamanmál.
Í gær lýstu ráðherrarnir Þórunn Sveinbjarnardóttir og Björgvin G. Sigurðsson þeirri skoðun sinni að rétt sé að kjósa á næsta ári - gefa þjóðinni kost á að segja álit sitt eftir umbyltingar síðustu vikna og mánaða, sem enn sér raunar ekki fyrir endann á.
Þetta verður Jóni Gunnarssyni tilefni til að fara með grín og glens.
Hann slær því fram í háði (hlýtur bara að vera!) að Þórunn og Björgvin ættu að segja þegar í stað af sér fyrir þá miklu ósvinnu að vilja "riðla hinu hefðbundna starfi þingsins" með því að "eyða tíma í umræður um kosningar".
Hann var að grínast, var það ekki? Ekki líta þingmenn í alvöru svona á lýðræðið?
Blogg
GRÍNISTI Á ALÞINGI
09:21 › 21. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
