Þrautreyndir fréttahaukar segja mér að stór hluti ástæðu þess hvað Ingibjörg Sólrún Gísladóttir virðist gjörsamlega úr tengslum við fólkið í landinu sé "ofverndun" sem hún sæti af hálfu aðstoðarmanns síns, Kristrúnar Heimsdóttur.
Kristrúnu hafi með furðulegum hætti tekist að einangra Ingibjörgu Sólrúnu frá bæði fréttamönnum og alþýðu manna.
Oft án þess að Ingibjörg Sólrún sjálf geri sér grein fyrir því.
Þetta eigi alls ekki aðeins við um tímann eftir að Ingibjörg Sólrún veiktist nú í haust, en eftir það hafi einangrun utanríkisráðherra aukist enn.
Ég hafði ekki heyrt þetta fyrr en í dag þegar nokkrir stjórnmálaáhugamenn komu saman og furðuðu sig á því stórkostlega skilningsleysi á líðan þjóðarinnar sem Ingibjörg Sólrún sýndi með yfirlýsingu sinni um að kosningar "kæmu ekki til greina".
Skilningsleysi sem mun stórskaða Samfylkinguna ef hún verður ekki dregin til baka með einhverjum hætti.
Sumum fannst að Kristrúnu bæri partur af sökinni fyrir að hafa einangrað ISG svo að kemst aldrei í snertingu við fólkið í landinu. Þó auðvitað sé það fyrst og fremst mál Ingibjargar sjálfrar að hafa látið það líðast.
Á það verður að leggja þunga áherslu.
- - - -
Eftir á að hyggja er þessi kenning kannski fyrst og fremst til marks um algjör furðu bæði hinna fyrrnefndu fréttahauka sem og almennra stjórnmálaáhugamanna yfir því hvað Ingibjörg Sólrún virðist í undarlega litlum tengslum við almenning. En fréttahaukarnir halda sig þó fast við að Kristrún hafi reynst húsfreyju sinni alltof mikill verndari.
Blogg
ER KRISTRÚN HEIMISDÓTTIR SÖKUDÓLGURINN?
12:38 › 21. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
