ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EINHVER AÐ LEIKA INGIBJÖRGU SÓLRÚNU?

11:02 › 21. nóvember 2008


Það virðist einhver manneskja hafa gert það af skömm sinni að dulbúast sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og dúkka upp fyrir framan stjórnarráðið.

Þar virðist þessi kona hafa leikið Ingibjörgu Sólrúnu svo vel að fréttamenn létu blekkjast og tóku viðtal við hana.

En ég lét ekki blekkjast!

Því þegar þessi gervi-Ingibjörg Sólrúnu sagði að kosningar kæmu ekki til greina, þá vissi ég auðvitað strax að þetta gat ekki verið hin rétta Ingibjörg Sólrún!

Hún er jú töluvert merkilegri stjórnmálamaður en Jón Hver Gunnarsson.

Er það ekki?





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?