ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SÍÐASTA SMJÖRKLÍPAN?

21:13 › 20. nóvember 2008


Viðtalið við Geir Haarde í Kastljósi gaf til kynna hve lítil innistæða er stundum og líklega oftast fyrir hinum skelfilegu hótunum Davíðs Oddssonar, sem hélt þó samfélaginu í heljargreipum árum saman.

Davíð var með einhverjar ógurlegar meiningar um að "hann vissi" af hverju Bretar settu hryðjuverkalögin alræmdu.

Tiltekin samtöl hefðu nefnilega átt sér stað ...!

Hann ætlaði bara ekki að segja frá þeim samtölum.

Nema kannski seinna.

Stundarkorn tókst honum ætlunarverkið.

Að beina athyglinni að sjálfum sér og frá sjálfum sér í senn.

Skelfilegu lostið samfylkingarfólk fékk martraðir um að Ingibjörg Sólrún eða Björgvin G. hefðu kannski verið með ruddaskap við Gordon Brown og sagt Alistair Darling að bíta í punginn á sér.

Og þetta væri því allt þeim að kenna.

Svo upplýsir Geir málið.

Þessi voðalegu samtöl voru samtöl Breta við Davíð sjálfan og Geir Hilmar Haarde.

Um peningaflutninga sem Bretar héldu að hefðu átt sér stað frá Kaupþingi í Bretlandi. En virðast í raun hafa verið flutningar til Kaupþings í Bretlandi.

Hvað sem því líður - ef eitthvað er að marka Geir, þá var þetta allt heila málið.

Og varla lýgur Geir.

En þá sannar þetta bara eina ferðina enn að í Seðlabankanum er ekki grandvar embættismaður, heldur pólitíkus sem er búinn að klína svo miklu smjöri að hann nær ekki einu sinni taki á sjálfum sér lengur.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?