ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SAMFYLKING SEFUR ENN ...

08:00 › 20. nóvember 2008


... þótt allir aðrir séu byrjaðir að undirbúa sig fyrir átökin frammundan.

Sjálfstæðisflokkur Geirs ætlar að reyna að klóra í bakkann með kúvendingu í ESB-málum.

Framsóknarflokkurinn sömuleiðis.

Og þótt ég og fleiri höfum kallað eftir því vikum saman að ný stjórnmálaöfl yrðu mynduð af þeim sem vildu nýja stefnu hér innan lands eftir hrunið, þá virðist fyrsti nýi flokkurinn ætla að verða stjórnmálaafl Davíðs Oddssonar hjónabandssérfræðings.

En Samfylkingin í ríkisstjórn gerir ekkert.

Hún krefst þess ekki að Seðlabankastjórnin og yfirmenn FME segi af sér. Hún krefst þess ekki að Árni Mathiesen segi af sér og rannsakað verði mál Baldurs Guðlaugssonar.

Bankamálaráðherra Samfylkingar gengur ekki á undan með góðu fordæmi og segir af sér.

Samfylkingin gefur ekki algerandi yfirlýsingu um ESB. Við vitum að hún vill komast þangað en hún telur mikilvægara að gefa elsku besta kallinum Geir Haarde "tilfinningalegt svigrúm" en að veita þjóðinni leiðsögn.

Hún er ekki búin að kalla í Martti Ahtisaari eða álíka kanónu til að stýra rannsókninni á hruninu.

Hún er ekki búin að gefa neinar yfirlýsingar um hvernig á að nota þau erlendu lán sem við munum fá. Á að nýta þau í vonlausa tilraun til að bjarga krónunni, eða hvað?

Nú er lánið frá IMF reyndar komið. Hafi Samfylkingin ekki viljað rugga bátnum fyrr en það væri komið, þá er sú afsökun altént ekki gild lengur.

Baulaðu nú, Búkolla mín, ef þú ert nokkurs staðar á lífi!





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?