Nú upplýsir Mogginn að einn helsti hvutti Davíðs Oddssonar, Júlíus Hafstein, hafi stungið upp á því við skipuleggjendur 17. júní hátíðahalda í Reykjavík að hætt yrði við að láta forsetann setja blómsveig á leiði Jóns Sigurðssonar á þjóðhátíðardaginn.
Auðvitað varð þetta ekki úr.
En lágkúran, maður, lágkúran!
Og Júlla Hafstein var nokkru síðar launað með sendiherraembætti. Hann verður á fínum launum hjá okkur út ævina.
Skattar nokkurra óbreyttra verkamanna munu fara í það eitt héðan í frá að borga launin og eftirlaunin sem Júlíus fær.
Ekki fyrir þjónustu við íslensku þjóðina.
Heldur litlu fáránlegu klíkuna sem leit á okkur sem leiktjöld um eigin dýrð.
Svo vogar Heimastjórnarflokkurinn sér að tala um spillingu annarra!
- - - -
Júlíus neitar því staðfastlega að þetta hafi átt sér stað. Rétt að halda því til haga.
Blogg
LÁGKÚRAN, LÁGKÚRAN!
11:20 › 20. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
