Ágæt grein eftir Hallgrím Helgason í Fréttablaðinu í morgun, þar sem hann furðar sig eins og fleiri á Samfylkingunni. Í Kiljunni hans Egils í gærkvöld rappaði hann líka eigin útgáfu af "Ísland er land þitt" sem ég leyfði mér að taka af bloggsíðu Láru Hönnu Einarsdóttur.
Það er nú ekki meiningin að Trésmiðjan verði mikið í því að endurbirta efni annars staðar frá en í þessu tilfelli fannst mér full ástæða til.
- - - -
Ísland er stjórnlaust, því enginn því stjórnar
Ísland er fleki af dýrustu gerð
Ísland er landið sem Flokkurinn fórnar
Ísland á reki í sjónum þú sérð
Ísland í forsetans orðanna skrúði
Ísland sem bankana auðmönnum gaf
Ísland sem sonanna afrekum trúði
Ísland er land sem á verðinum svaf
Íslensk er þjóðin sem allt fyrir greiðir
Íslensk er krónan sem fellur hvern dag
Íslensk er höndin sem afvegaleiðir
Íslensk er trúin: "Það kemst allt í lag"
Íslensk er bjartsýna alheimskuvissan
um íslenskan sigur í sérhverri þraut
Íslensk er góðæris átveisluhryssan
sem íslenskan lepur nú kreppunnar graut
Ísland er landið sem öllu vill gleyma
sem Ísland á annarra hlut hefur gert
Íslenska þjóð, þér var ætlað að geyma
hið íslenska nafn sem þú hefur nú svert
Íslandi stýra nú altómir sjóðir
Ísland nú gengur við betlandi staf
að Íslandi sækja nú alls konar þjóðir
Ísland er sokkið í skuldanna haf
Blogg
ÍSLAND ER STJÓRNLAUST, ÞVÍ ENGINN ÞVÍ STJÓRNAR
09:48 › 20. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
