Fréttablaðið skýrir frá því að þáverandi forsætisráðherra hafi farið að amast við hjónabandi Ólafs Ragnars forseta og Dorritar Moussaieff.
Af því ef til vill hugsanlega kannski hafi mögulega skort pappír um skilnað Dorritar á Bretlandi aldarfjórðungi fyrr.
Og það þótt sýslumaður hafi verið búinn að fullvissa brúðhjónin um að allir nauðsynlegir pappírar væru fyrir hendi, og allt væri klappað og klárt.
Við vissum að þáverandi forsætisráðherra seildist býsna langt til að ná höggi á andstæðinga sína.
En er þetta ekki aðeins of langt gengið?
Er þetta ekki hér um bil eins lágkúrulegt og orðið getur?
Blogg
DAVÍÐ OG DORRIT
07:38 › 20. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
