ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AF HVERJU VIL ÉG AÐ ÍSLAND GANGI Í ESB

16:32 › 20. nóvember 2008


Af þessum ástæðum:


1.
Þótt við metum þjóðerni okkar mikils og menningu, þá merkir fullveldi þjóða ekki það sama og það gerði framan af 20. öld þegar nýlendur voru að brjótast undan herraþjóðum.

Ísland mun ekki tapa hóti meira af fullveldi sínu en þegar er orðið, þótt landið gangi í ESB.


2.
Íslenska krónan er of lítill og veikburða gjaldmiðill til að vera brúklegur. Bæði núna í hremmingum okkar og eins þegar land fer að lyftast á ný. Þetta er, trúi ég, öllum ljóst. Þá er spurningin aðeins hvaða gjaldmiðil eigum við að taka upp. Og þá finnst mér algjörlega augljóst að við hljótum að taka upp þann öflugasta gjaldmiðil sem við getum. Af hverju ættum við að fara í einhvern veikari?

Norsku krónuna? Í fyrsta lagi vilja Norðmenn það ekki. Í öðru lagi er norska krónan, þrátt fyrir allan olíuauðinn, ekki merkilegri pappír en svo að Norðmenn reikna með að ef Íslendingar ganga í ESB muni þrýstingur á þá að gera slíkt hið sama aukast verulega.


3.
Ég veit ósköp vel að aðild að ESB mun hafa í för með sér galla, ekki síður en ávinninga. Ég held hins vegar að ávinningarnir verði fleiri.

Umfram allt, þá vil ég fá að fá sjá niðurstöður aðildarviðræðna við ESB svart á hvítu, og sem allra fyrst. Það er ekki eftir neinu að bíða. Verði þær niðurstöður okkur ekki nógu hagstæðar, þá mun ég ekki hika við að greiða atkvæði á móti ESB.

Í raun og veru leiðist mér nefnilega sambandið! En ég held að það sé okkur fyrir bestu, og þá eigum við að láta okkur hafa það.


4.
Spilling, klíkuskapur og fáviska af öllu tagi hafa nú lagt efnahag Íslands í rúst. Þótt ESB uppræti ekki í sjálfu sér spillingu og klíkuskap í löndum sínum, þá held ég að aðild að sambandinu gefi okkur kærkomið tækifæri til að siðvæða og siðbæta íslenskt stjórnkerfi.

Sú harka sem ESB sýndi okkur í Icesave-málinu hvetur mig frekur en letur til að vilja ganga í ESB.

Við höfum ekki efni, siðferðilega, til að sitja móðguð úti í horni og finnast allir vera vondir við okkur. Harka ESB sýnir fyrst og fremst fram á að sambandið gætir hagsmuna aðildarríkja sinna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?