ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN ER EKKI TIL

09:10 › 2. nóvember 2008

Því miður munu næstu vikur snúast voða mikið um Sjálfstæðisflokkinn.
Fylgishrun Sjálfstæðisflokksins í skoðanakönnunum.

Og möguleika á því að flokkurinn skipti ef til vill hugsanlega kannski um stefnu í Evrópumálum.

Og því miður er mjög mikil hætta á því að nauðsynleg skref verði ekki stigin á réttum tíma af því að sjálfstæðismenn séu svo hræddir við að flokkurinn þeirra klofni.

Sem er mjög mikill skaði nú þegar tímasetningar skipta miklu,

Því langar mig að gleðja sjálfstæðismenn með því að þeir þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af klofningi flokksins.

Flokkurinn þeirra er nefnilega ekki til.

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lífvera með þarfir, langanir, þrár, hvatir og fordóma.

Sjálfstæðisflokkurinn er bara safn af flokksskírteinum.

Það þykir kannski kjánalegt að benda á þetta, en stundum er það nauðsynlegt.

Nú þegar sumir sjálfstæðismenn neita að horfa út fyrir boxið sitt, af misskilinni tryggð við "flokkinn sinn".

En ágætu sjálfstæðismenn sem nú þurfið að hugsa ýmsa hluti upp á nýtt - tryggð og trúnað sýnir maður fólki.

Gerið því ykkar besta í nafni tryggðar og trúnaðar við fólkið í þessu landi.

En látið ekki vefjast fyrir ykkur hvaða áhrif umbyltingar á stefnu hafa á haug af flokksskírteinum.

Þótt Sjálfstæðisflokkurinn klofni, þá deyr enginn.

Nokkrir missa kannski völdin.

En áreiðanlega bara þeir sem eiga skilið að missa völdin, eða hefðu aldrei átt að hafa nein völd.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?