Hvað á það að þýða hjá ráðherrum Íslands að "neita að tjá sig" um stöðu Seðlabankastjóra?
Hafa ráðherrar ekki enn áttað sig á því að íslenska þjóðin er búin að fá sig fullsadda af því að ráðamenn pukrist í bakherbergjum með hagsmuni sem ekki eru taldir koma þjóðinni við?
Þetta er eitt mikilvægasta embætti landsins, ekki síst á tímum sem þessum.
Það kemur okkur svo sannarlega við.
Og við eigum rétt á að vita allt um málið. "Pólitískir hagsmunir" nokkurra klíkuforingja eiga ekki að ráða för.
Héðan í frá eigum við að krefjast þess að fá að vita allt sem í þessu þjóðfélagi gerist.
Blogg
HVAÐA ÓSVÍFNI ER ÞETTA?!
12:21 › 2. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
