ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FÍNT HJÁ EVU MARÍU

21:45 › 2. nóvember 2008

Fínt hjá Evu Maríu að taka viðtal við Erlu Bolladóttur um Guðmundar- og Geirfinnsmál.
Þrátt fyrir alla kreppu megum við ekki gleyma því reginhneyksli í íslenskri réttarsögu.

Og því sem eiginlega er enn meira hneyksli, að ekki skuli hafa tekist að fá málin tekin upp að nýju.

Þótt allir viti að saklaust fólk var dæmt.

Sævar Ciecielski reyndi eins og hann gat að fá málin tekin upp aftur fyrir tíu árum eða tólf; okkur til ævarandi skammar tókst það ekki.

Sennilega á að bíða eftir að allir hvítflibbarnir verði dauðir og grafnir.

Það væri kannski ágætur prófsteinn á hið "nýja Ísland" sem við vonum líklega öll að verði reist eftir hrunið, hvort það er betur í stakk búið en hið gamla til að takast af heiðarleika á við mál eins og Guðmundar- og Geirfinnsmál.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?