ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ER ÞETTA HARMLEIKUR?

16:14 › 2. nóvember 2008

Um aldamótin síðustu, þegar menn voru að velta fyrir sér hver væri maður aldarinnar, þá veitti Davíð Oddsson Halldóri Laxness iðulega harða keppni um nafnbótina "Maður aldarinnar".
Hann var búinn að sannfæra okkur svo vel um að hann væri frábær stjórnandi að meira að segja allmjög vinstri sinnaður rithöfundur sagði við mig fyrir þingkosningarnar 1999: "Tja, hver annar getur stjórnað okkur?"

Ég var alveg viss um að hann myndi hætta eftir aldamótaárið. Hann hlyti að skilja að þaðan í frá lægi leiðin bara niður á við.

En hann hætti ekki.

Og nú stendur hann úfinn og trylltur til augnanna í rústum peningamálastefnu sinnar á Svörtuloftum, búinn að stefna landsmönnum nær þjóðargjaldþroti en Íslendingar hafa nokkurn tíma komist áður.

Í blöðum vestanhafs er hann (sem ábyrgðarmaður peningamálastefnunnar) kallaður "fífl" en í Þýskalandi er efast um raunveruleikaskyn hans.

Og nú hefur hann lífverði til að vernda sig gegn þeirri þjóð sem fyrrum dáði hann.

Enginn styður hann, nema gamla menntaskólaklíkan.

Og svo Gunnar Smári Egilsson.

Kannski væri þetta efni í sjeikspírskan harmleik?

Mér finnst bara svo ansi lítið smart af honum að hafa þurft að draga alla þjóðina með sér í skítinn.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?