Davíð var með hótanir í ræðunni sinni í gær.
Sagðist vita af hverju Bretar hefðu beitt hryðjuverkalögunum.
Það væri auðvitað alls ekki honum að kenna.
En hann ætlaði bara ekki að segja okkur það.
Fyrirgefiði, þetta gengur ekki.
Annaðhvort er þetta innantóm hótun eða í besta falli skoðun Davíðs á því af hverju Bretar beittu hryðjuverkalögunum.
Eða þá að fólk í stjórnkerfinu veit eitthvað sem við fáum ekki að vita.
Væntanlega af því það kemur einhverjum illa.
Það gengur ekki.
Við sitjum í súpunni eftir þetta lið. Það minnsta sem við eigum rétt á er að vita allan sannleikann, nú þegar.
Allir fjölmiðlar landsins verða því að sameinast um að fá það uppgefið hvað Davíð átti hér við.
Var það eitthvað, eða ekkert?
Ein smjörklípan enn?
Hvort heldur er, þurfum við að fá að vita það.
Blogg
HÓTUN DAVÍÐS Í GÆR
11:10 › 19. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
