ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞVAÐRIÐ Í DAVÍÐ

12:00 › 18. nóvember 2008


Samkvæmt útvarpinu hélt Davíð því fram í morgun að ein af ástæðum þess að ekki var tekið mark á stöðugum varnaðarorðum hans (!!!) út af bönkunum, væri sú að fjölmiðlafrumvarpið hefði ekki verið samþykkt á sínum tíma.

Já, það var einmitt það!

Var það Fréttablaðið sem vélaði með bindisskylduna?

Gat hinn áhyggjufulli Seðlabankastjóri ekki náð í neinn til að taka í taumana af því þeir voru svo önnum kafnir við að lesa Fréttablaðið?

Var gamli vinurinn Geir Haarde búinn að troða Fréttablaðinu í eyrun á sér og heyrði þess vegna ekki kveinstafi síns gamla foringja?

Þetta er náttúrlega bara fáránlegt rugl. Maður skammast sín fyrir hönd Davíðs að hlusta á svona þvaður.

Maðurinn var ekki bara í valdamiklu embætti Seðlabankastjóra, heldur hafði líka mest persónulegt áhrifavald sem nokkur maður hefur haft á Íslandi, fyrr og vonandi síðar.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?