ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 9.6° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞEGAR DAVÍÐ HÓTAÐI AÐ REKA GEIR

20:27 › 18. nóvember 2008


Í innstu forystu Sjálfstæðisflokksins er eftirfarandi frásögn talin bláköld staðreynd:

Þegar Davíð Oddsson var að djöflast með fjölmiðlafrumvarpið sitt vorið 2004 atti hann mjög á foraðið mönnum eins og Birgi Ármannssyni og Sigurði Kára.

Eftir því var hins vegar tekið að varaformaðurinn Geir Haarde, þá fjármálaráðherra, virtist sem minnst vilja koma nálægt frumvarpinu.

Hann passaði sig vandlega á að vera hvergi nærri þegar þurfti að gefa upp afstöðu til frumvarpsins. Geir virtist vera kominn með sjálfstæðan vilja!

Davíð reiddist þessu. Að lokum kallaði hann á Geir til fundar og sýndi honum tvo bréf.

Annað bréfið var ótvíræð stuðningsyfirlýsing Geirs Haarde við fjölmiðlafrumvarpið.

Í hinu bréfinu sagði Geir af sér öllum trúnaðarstörfum.

Davíð sagði Geir að hann þyrfti að velja hvort bréfið hann vildi skrifa undir.

Síðan studdi Geir fjölmiðlafrumvarpið.






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?