... heitir Farhat Omar bin Guidara. Hann er að sjálfsögðu sprenglærður hagfræðingur eins og Seðlabankastjórar allra landa í heimi, nema Íslands og einhvers annars frumstæðs lands sem ég er búinn að gleyma hvað er.
Gaddafí einræðisherra Líbýu hefur um hríð átt sér þann draum að útdeila öllum olíugróða landsins beint til þjóðarinnar, þannig að hver íbúi fái bara peningabúnt í hendur. Um þetta hefur hann haldið margar langar ræður.
Fram til þessa hafa orð Gaddafís verið lög í Líbýu en í síðustu viku gerðust þau stórtíðindi í Líbýu að sjónvarpið sýndi í fyrsta sinn pólitískan umræðuþátt sem var ekki þrotlaust lof og prís um stefnu Gaddafís.
Bin Guidara Seðlabankastjóri og Gaddafí leiddu saman hesta sína og Seðlabankastjórinn mannaði sig upp og fékk reyndar óáreittur að mótmæla hugmyndum leiðtogans mikla.
Hér á Íslandi væri gaman að sjá umræðuþátt þar sem forsætisráðherrann mannaði sig upp og mótmælti ræðuhöldum Seðlabankastjórans mikla.
Blogg
SEÐLABANKASTJÓRINN Í LÍBÝU ...
15:10 › 18. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
