Seðlabankastjóri er þjónn íslensku þjóðarinnar.
Embættismaður.
Og hann er starfsmaður ríkisstjórnarinnar.
Hann situr í embætti sem er mjög mikilvægt að ríki friður og trúnaður um.
Núverandi Seðlabankastjóri gerir sér ekki grein fyrir þessu.
Þá verður ríkisstjórnin auðvitað að reka hann.
90 prósent þjóðarinnar hafa þegar sagt í skoðanakönnun að hann eigi að fara.
Virtir erlendir hagspekingar hafa sagt að hann sé fífl.
Allir íslenskir hagfræðingar telja bæði stefnu hans og rangar ákvarðanir eiga stóran þátt í hversu illa er komið á Íslandi.
Hvað meira þarf til að losna við einn embættismann?
Það er svo sárgrætilegt að þurfa að tönnlast á þessu aftur og aftur og aftur.
Blogg
HVAÐ MEIRA?
21:06 › 18. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
