ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

GUÐNI Á STUTTBUXUM Á KANARÍ!

08:13 › 18. nóvember 2008


DV upplýsir að Guðni Ágústsson hafi drifið sig beint til Kanaríeyja eftir að hafa sagt af sér í gær.

En ómerkilegt!

Ég verð að segja að ég hef orðið fyrir djúpum vonbrigðum með Guðna.

Eftir þvílíka ögurstund í lífi sínu hefði ég haldið að maður eins og Guðni færi á sínar heimaslóðir fyrir austan fjall, pírði augun upp í vindinn og talaði við Heklu.

Tæki sér jafnvel skóflu í hönd og græfi eins og einn skurð með samanbitnar tennur.

En í staðinn ætlar hann að þvælast um á stuttbuxunum sínum á Klörubar á Kanaríeyjum!



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?