ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Á AÐ AFHENDA ÓREIÐUMÖNNUM MILLJARÐANA?

07:55 › 18. nóvember 2008


Ég tek undir áhyggjur málsmetandi hagfræðinga sem óttast að milljörðunum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði sóað í fyrirfram vonlausa tilraun til að gervistyrkja íslensku krónuna.

Við verðum að fá upp á borðið, og þegar í stað, hreinskiptna umræðu um hvað eigi að gera við milljarðana.

Við eigum að fá að fá að taka meiri þátt í viðreisninni hér en bara að leggja eyrun við á blaðamannafundum "leiðtoganna".

(Ég gat bara ekki setið á mér að setja þessar gæsalappir utan um leiðtogana.)

Og umfram allt - það kemur bara ekki til mála að núverandi yfirstjórn Seðlabankans fái að hafa eitthvað með útdeilingu þessa fjár að segja.

Sú yfirstjórn á meiri sök en flestir aðrir á hruninu.

Það er hrollvekjandi tilhugsun ef bankastjórarnir þrír fá nú fleiri fjöregg í hendur til að brjóta og týna.

Davíð sagði á sínum tíma, sem frægt var: "Við borgum ekki skuldir óreiðumanna." Sú yfirlýsing kostaði okkur að líkindum milljarða og aftur milljarða.

En af hverju ættum við að afhenda öðrum óreiðumönnum peninga sem við þurftum að grátbiðja um í útlöndum?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?