ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÞEGAR ÉG VAR REKINN

07:42 › 17. nóvember 2008


Nú er aftur varað við að fjölmiðlar séu of margir í eigu of fárra einstaklinga.

Ég veit ekki. En ef mér leyfist að taka dæmi af sjálfum mér: Í allri minni fjölmiðlatíð hefur það gerst nákvæmlega tvisvar að ég hef orðið var við "þrýsting eigenda" eða valdamikilla afla.

Ég var í viðtali hjá Hjálmari Hjálmarssyni á Rás 2 í gær og þá rifjaðist þetta upp fyrir mér.

Árið 1994 var ég rekinn sem pistlahöfundur á Rás 2 af því yfirmenn útvarpsins þoldu ekki lengur kvartanir ónefndra valdamanna í samfélaginu.

Eitthvað um fimm árum seinna var ég ásamt fleirum með kvöldpistla á Skjá einum. Og þáverandi forráðamenn Skjás eins þurftu fyrirgreiðslu í banka.

Ríkisbanka, sem þá var.

Þeim var sagt þeir gætu fengið þá fyrirgreiðslu, en aðeins ef tiltekinn leiðinlegur pistlahöfundur yrði látinn hætta.

Svo þeir sögðu upp öllum pistlahöfundunum sínum og báru við of miklum kostnaði.

Svo ríkið getur líka verið varasamt, skiljiði ...




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?