ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SKILABOÐ TIL VINSTRI GRÆNNA

10:28 › 17. nóvember 2008


Sumir í hreyfingu Vinstri grænna tóku svolítið óstinnt upp að ég skyldi skrifa í gær um að ekki væru allir í þeirra röðum jafn ánægðir með afdráttarlausa andstöðu Steingríms J. gegn mögulegri umsókn um ESB.

Ég var reyndar hissa á hversu óstinnt upp sumir tóku þetta. Það vita jú allir að í hreyfingu ungliða Vinstri grænna eru margir komnir á þá skoðun að brýnt sé að endurskoða stefnuna gagnvart ESB.

Það var eins og það mætti bara alls ekki benda á það. Til að ekki félli blettur á hinn góða foringja Steingrím J.

Í því sambandi vil ég aðeins benda mínum mörgu góðu vinum í VG á að nú eru ekki tímar foringjahollustu.

Nú eru tímar uppgjörs og nýrra hugmynda.

Ekki foringjahollustu!

Við höfum vonda reynslu af henni.

En það sem ég vildi sagt hafa:

Íslendingar munu sækja um aðild að Evrópusambandinu.

Það er bara staðreynd. Það er líka eðlilegt og sjálfsagt skref við okkar aðstæður.

Við þurfum að fá að vita hvaða kosti og hvaða galla aðild að ESB hefur í för með sér, eins og nú er komið.

Það fáum við aðeins að vita með aðildarumsókn og aðildarviðræðum.

Ekki með fundahöldum í Valhöll eða hjá Vinstri grænum. Hvað þá Framsóknarflokknum!

Það er eðlilegt og rétt að sækja um sem allra allra fyrst, svo við getum afgreitt það mál í eitt skipti fyrir öll hvort aðild að ESB sé rétta lausnin fyrir okkur.

Og svo samþykkt eða fellt aðildina í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þetta mun gerast. Ég veit það, og þið vitið það líka vel, mínir fjölmörgu góðu vinir í VG.

Svo eftir hverju er að bíða? Við getum vel reynt að bjarga heimilunum og samtímis sent menn út til Brussel að leita hófanna hjá ESB. Það er stundum hægt að gera tvennt í einu!

Ef VG ætlar, einn flokka, að þrjóskast við, lofar það ekki góðu fyrir framtíðarstöðu flokksins.

Af hverju taka Vinstri grænir ekki frekar þátt í að undirbúa aðildarumsóknina, en tuldra þetta úti í horni?

Varla er svona gaman í hinni eilífu stjórnarandstöðu?







Að lokum



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?