ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

EINKAÞOTA BJÖRGÓLFS AÐ FERÐBÚAST

12:31 › 17. nóvember 2008


Tíðindamaður Trésmiðjunnar átti rétt í þessu leið út á Reykjavíkurflugvöll.

Þar vakti athygli að verið var að búa til flugtaks ljómandi snotra mjallahvíta einkaþotu.

Tíðindamanninum kom þetta nokkuð á óvart því hann hélt að nú væru af lagðir tímar einkaþotunnar.

Var nú kannski allt á blússandi uppleið aftur?

Starfsmaður í fyrirtæki við flugvöllinn kvaðst ekki vita betur en þetta væri einkaþota Björgólfs Guðmundssonar.

Hann er kannski á leiðinni á stjórnarfund í West Ham?





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?