ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

96 PRÓSENTA TRAUST

09:15 › 17. nóvember 2008


Á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í mínum hlýja Volvó nú áðan heyrði ég að fréttamaður byrjaði að lesa frétt:

"96 prósent landsmanna bera traust til ..."

Og mér gafst tími til að hugsa á einu sekúndubroti: Hjálpi mér! Er einhver í þessu landi sem 96 prósent landsmanna bera traust til? Hver í ósköpunum gæti það verið?

"... slökkviliðsins," hélt fréttamaðurinn áfram.

Þar lá að. Það er kannski ekki skrýtið þó ráðamenn í landinu hafi stundum reynt að bregða yfir sig kápu slökkviliðsmannsins þegar þeir lýsa viðfangsefnum sínum þessa dagana. "Slökkva elda ... á brunastað ... olía á eld ..."

Og stela með því svolitlu af því trausti til slökkviliðsmannanna sem yfirvöldin njóta ekki sjálf.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?