ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.9° 2m/s E
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VG-LIÐAR ÓKYRRAST ÚT AF STEINGRÍMI

17:32 › 16. nóvember 2008


Ég skrifaði í fyrradag um frekar lummuleg viðbrögð Steingríms J. við væntanlegri stefnubreytingu Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum.

Áreiðanlegar heimildir Trésmiðjunnar innan Vinstri grænna herma að ungliðar VG (og ýmsir fleiri) hafi verið mér alveg hjartanlega sammála!

Þar séu menn mjög (og þá meina ég mjög) farnir að ókyrrast yfir því hve silalegur Steingrímur J. sé í allri sinni pólitík.

Hann haldi sínar gamalkunnu ræður á Alþingi en aðhafist að öðru leyti furðu fátt.

Mjög stór hópur innan ungliðahreyfingar VG vill gerbreytta stefnu í Evrópumálum. Þar man allt í einu enginn af hverju flokkurinn er á móti ESB, ólíkt flestum systurflokkum sínum í Evrópu.

Æjú, af því að Steingrímur vildi það!

Nú eru VG-menn hræddir um að flokkurinn muni aldrei festa sig í sessi sem 30 prósenta flokkur ef Steingrímur áttar sig ekki á að hann verður að breyta um stefnu.

Ljá máls á samvinnu við ESB-sinna innan Samfylkingar en ekki ráfa um í eldbrunnum loftköstulum um samvinnu við Sjálfstæðisflokk.

Einn VG-manna orðaði það svo að þar í flokki væru vaknaðar grunsemdir um að Steingrímur væri kannski innst inni orðinn smeykur við að setjast í ríkisstjórn. Hann kynni vel við sig í ræðupúlti Alþingis en metnaður hans að öðru leyti væri þorrinn.




 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.